Addams fjölskyldan

Date & Time

Wed Apr 01 2026 at 08:00 pm to 10:00 pm

UTC+00:00

Location

Félagsheimilið á Hvammstanga | Saudarkrokur, AS

Addams fj\u00f6lskyldan
Advertisement

Details

Leikflokkur Húnaþings vestra sýnir gamansöngleikinn Addams fjölskyldan um páskana 2026. Leikstjóri og þýðandi er Sigurður Líndal og danshöfundur er Benjamin Di'Ath. Addams fjölskylduna þekkja margir en þetta er engu að síður í fyrsta sinn sem söngleikurinn er sýndur á Íslandi.
Söngleikurinn, byggður á persónum The Addams Family eftir Charles Addams, snýst um það þegar Wednesday Addams gerir hið óhugsandi: hún verður ástfangin af alveg hreint „venjulegum“ strák, Lucas Beineke.
Hún lætur föður sinn, Gomez, lofa að segja Morticiu móður sinni ekkert – sem er álíka raunhæft og að biðja sprengju um að hvísla. Þegar foreldrum Lucasar er svo boðið í kvöldverð mætast tveir gjörólíkir heimar: sólskinsleg kurteisi Beineke-fjölskyldunnar og dásamlega dimmur veruleiki Addams-ættarinnar.
Leyndarmál springa, dramatík magnast og allt fer úr böndunum með söng og svörtum húmor. Að lokum snýst sagan þó um ást, traust og að samþykkja að það sem er „eðlilegt“ er bara afstætt – sérstaklega þegar fjölskyldan þín elskar myrkrið.
Þetta er fjórði söngleikurinn sem Leikflokkur Húnaþings vestra setur upp en í ár eru tíu ár síðan fyrsti söngleikurinn Súperstar var sýndur. Ekkert er slakað á í framsetningu, frekar en í hinum söngleikjauppfærslunum, en þess má geta að árið 2019 var uppfærsla leikflokksins á Hárinu valin athyglisverðasta áhugaleiksýning af Þjóðleikhúsinu.
Sýningadagar eru 1. apríl, 2. apríl (Skírdagur) , 4. apríl og 6. apríl (Annar í páskum).

Event Location

Félagsheimilið á Hvammstanga, Klapparstíg 4,Hvammstangi, Saudarkrokur, Iceland
Icon
Discover ALL the hottest Halloween parties near you.

Event Host

Leikflokkur H\u00fana\u00feings vestra
Leikflokkur Húnaþings vestra

Explore more by tags

Halloween in Saudarkrokur

Ask AI if this event suits you:

Discover More Halloween Events in Saudarkrokur

Addams fj\u00f6lskyldan
Wed, 01 Apr at 08:00 pm Addams fjölskyldan

Félagsheimilið á Hvammstanga

PERFORMING-ARTS COMEDY

Halloween in Saudarkrokur?

View All Halloween Saudarkrokur Events